Fáskrúð í Dölum
Laxveiðiá í stórbrotnu umhverfi.
Áhugasamir vinsamlegast hafiði samband við Arnór Björnsson annaðhvort á netfangið arnor1307@gmail.com eða síma 8222692
Laxveiðiáin
Fáskrúð í Dölum
Fáskrúð í Dölum er einstaklega falleg, fjölbreytt og skemmtileg laxveiðiá í stórbrotnu umhverfi. Hún á upptök sín á Gaflfellsheiði tugi kílómetra frá sjó og fellur svo til sjávar í Hvammsfjörð um 8 km fyrir norðan Búðardal.
Veiðisvæðið er um 14 km frá Katlafossi til sjávar og þar er að finna 40 merkta veiðistaði, allt frá kröftugum strengjum í fallegar breiður. Þrátt fyrir að Fáskrúð sé á stórum köflum í stórgrýttu gili er hún mjög aðgengileg og fær öllum fjórhjóladrifnum bifreiðum.
Veiðiréttarhafar hafa sammælst um markvisst uppbyggingar- og ræktunarstarf í Fáskrúð með það fyrir augum að vernda stórfiskagen árinnar og auka fiskgengd.
Eina leyfilega agnið í Fáskrúð er því fluga og skylt er að sleppa öllum löxum stærri en 69 cm. Leyfilegt er að drepa einn hæng á stöng á vakt.